Óhuggulegur draumur

Þessi draumur barst frá: Draumadís (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 9. ágú. 2007

Sæll kæri draumráðandi. Mig dreymdi frekar óhuggnanlegan draum og situr það sem ég man úr honum ansi fast í mér. Ég er sem sagt stödd hjá lækni og er barnshafandi (sem ég er ekki í raun). Hann segir við mig að hann sé búin að setja mig af stað og ég eigi að hafa strax samband við hann ef það fer að blæða úr gómnum á mér. Í þeim orðum fer að fossa út úr mér hárautt blóð. Ég man ennþá blóðbragðið og verkinn sem fylgdi. Ég virtist gera mér grein fyrir því að þetta var ekki úr gómnum heldur eitthvað verra. Í draumnum man ég að ég hugsaði með mér..." þetta á ég ekki eftir að lifa af"...og þarna vaknaði ég. Frekar óhuggnanlegur draumur.... kveðja Draumadís

Draumráðning:

Kæra draumadís. Ég skil vel að þessi draumur valdi þér vissum áhyggjum. Til að ráða hann hefði verið gott að vita ögn meira um þína hagi, því hér getur skipt nokkru hvort þú ert ung eða gömul, átt börn fyrir eða ekki svo eitthvað sé nefnt. En ég skal reyna að ráða drauminn útfrá því sem ég get lesið af honum.

Það er mín trú að almennt sé gott að dreyma lækni og jafnframt að hlusta beri á það sem þeir segja í draumi ekki síður en um aðra er tala til manns í draumi. Það að dreyma lækni getur verið vísbending um að þú hafir einhverjar áhyggjur af eigin heilsu, sem þú ættir ekki að hafa. Það að þú ert barnshafandi í draumnum, gæti verið boði þess að þú missir fljótt meydóminn ef þú ert enn ung, en líklegasta skýringin fyrir mér er þó að þetta boði eitthvað nýtt, ný verkefni, ný viðfangsefni eða breytingar. Það að læknirinn setur þig af stað getur þannig bara verið ábending til þín að bíða ekki með eitthvað sem þig dreymir um að gera skapandi eða varðandi breytingar á þínu lífi.

Það að þig dreymir blóð er ekki jafn jákvætt og annað í draumnum, því blæði fólki veit það oft á veikindi eða erfiðleika af einhverju tagi, jafnvel vinamissi eða fráfall einhvers náins. Í þínu tilviki kemur þó fram að blóðið er hárautt sem er gott því þá getur það verið merki einhverra breytinga sem eru jákvæðar, en þó með þeim formerkjum að líklegt er að þú lendir í einhverju mótlæti áður en þú uppskerð það sem breytingarnar færa þér.

Eins og þú sérð af skrifum mínum á ég ofurlítið erfitt með að gefa þér einhlíta skýringu á draumnum þínum, en ég bið þig þó að láta drauminn ekki vekja hjá þér ótta. Ég hef þá trú að hann boði ekki slæmt fyrir þig, en vil ekki útiloka að hann sé að búa þig undir vinaslit af einhverju tagi, eða jafnvel missi einhvers nákomins. Gæti hér átt við þitt eigið ástarlíf ef það á við að þú verðir fyrir einhverjum svikum eða uppgötvir að hlutirnir séu ekki eins og þú ætlaðir. Eigirðu ekki barn fyrir getur draumurinn verið ábending til þín um að vara þig á einhverjum sem þú berð hug til. Hér getur líka bara verið um það að ræða að draumurinn boði breytta tíma með uppsprettu nýrra hugmynda og tækifæra sem þú átt að grípa.

Ef þú villt þá geturðu sent mér "komment" með örlítið meiri upplýsingum um þig; aldur, hjúskaparstöðu o.s.frv. því þá gæti ég e.t.v. ráðið meir í drauminn þinn, þ.e. hvað þessi draumtákn vilja segja þér.

Vona að þú hafir eitthvert gagn af þessu og óska þér alls hins besta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband