Rosalega óþægilegur draumur

Þessi draumur barst frá: Hrund Jakobsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 8. feb. 2008

Mig dreymdi síðustu nótt að ég væri að missa tennurnar. Hvað sem ég gerði þá losnaði alltaf ein og ein, pabbi minn var hjá mér og hann segir að ég verði að hætta að reykja og borða hollan mat (ég reyki, en það sem ég borða er aðallega organic matur). Ég er á mörgum stöðum í gegnum drauminn og alltaf halda þær áfram að detta og losna þannig að ég gat bara rétt tekið í þær og þá eru þær farnar. En um lokin á draumnum þá er ég komin erlendis (bý reyndar á Englandi) með eiginlega engar tennur eftir. þetta var á heitum stað með strönd ég er að labba einhverstaðar á þröngum gangi, er alveg eins og ég sé inni en samt eins og úti. En þar mæti ég Pony (smáhest). Vonandi geturðu sagt mér eitthvað um þennan draum. KV Hrund

Draumráðning:

Sæl Hrund

Áður en ég tek til við að ráða drauminn þinn langar mig að biðja þig að rifja upp hvort hesturinn hafi verið í einhverjum ákveðnum lit í draumnum. Einnig væri gott ef þú manast eitthvað eftir stöðunum sem þú fórst á og hvort þér fannst líða langur tími eða stuttur milli. Þú mátt gjarnan gefa mér upp hvort þú sért ung eða fullorðin og þá hvort þú sért þegar í sambúð og með fjölskyldu eða ekki.

Ég skal svo sjá hvers ég verð áskynja með drauminn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband